Andabringur með rauðvínssósu

Fyrir 3-4

Andabringur uppskrift

Hráefni

2 x Valette andabringur

Salt og pipar

 

Aðferð

Leyfið andabringunum að ná stofuhita áður en þið eldið þær.

Hitið ofninn í 160°C.

Skerið tígla í fituna án þess að fara í gegn í kjötið og nuddið grófu salti í hana alla.

Steikið á fremur háum hita í 4-5 mínútur með fituhliðina niður, takið alla umfram fitu jafnóðum af pönnunni svo fituhliðin verði stökk.

Steikið síðan í um 2-3 mínútur á hinni hliðinni, saltið og piprið báðar hliðar eftir smekk.

Færið í ofninn í um 15 mínútur til viðbótar eða þar til kjarnhiti nær 60°C.

Leyfið bringunum að standa í að minnsta kosti 10-15 mínútur áður en þið skerið þær niður í þunnar sneiðar.

Rauðvínssósa uppskrift

Hráefni

30 g smjör

1 laukur

2 meðalstórar gulrætur

2 hvítlauksrif

350 ml Muga rauðvín

400 ml vatn

2 msk. fljótandi Oscar nautakraftur

1 msk. soyasósa

2 lárviðarlauf

3 negulnaglar

1 anísstjarna

1 tsk. salt

½ tsk. pipar

2-3 msk. Maizenamjöl

Aðferð

Skerið lauk og gulrætur gróft niður og steikið upp úr smjörinu ásamt hvítlauknum. Leyfið að malla í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið mýkist.

Hækkið þá aftur hitann, hellið rauðvíninu í pottinn, náið upp suðunni og leyfið því að sjóða niður í nokkrar mínútur á meðalháum hita.

Þá má setja öll önnur hráefni í pottinn (nema Maizenamjöl) og hækka aðeins undir aftur til að ná upp suðunni að nýju, lækka síðan vel niður og leyfa að malla í að minnsta kosti 30 mínútur, lengur ef þið hafið tíma.

Sigtið þá allt gumsið frá, hellið sósunni aftur í pottinn, náið upp hitanum að nýju og þykkið eftir smekk með Maizenamjöli. Sósan má síðan alveg hvíla við mjög lágan hita á meðan þið klárið aðra eldamennsku.

Annað meðlæti og samsetning

Hráefni

Um 1,2 kg kartöflur

30 g smjör

300 ml nýmjólk

1 msk. sykur

½ tsk. salt

30 g rifinn parmesan ostur

Aðferð

Skrælið kartöflurnar og sjóðið þar til þær verða mjúkar og hellið þá vatninu af þeim.

Setjið öll önnur hráefni í pottinn og stappið saman með kartöflustöppu, eða setjið allt saman í hrærivélarskálina og blandið vel saman.

Marineraðir sveppir

Hráefni

Um 300 g kastaníusveppir

4 msk. Filippo Berio ólífuolía

2 msk. Filippo Berio balsamikgljái

2 msk. soyasósa

2 msk. púðursykur

2 rifin hvítlauksrif

1 tsk. saxað timian

 

Aðferð

Hitið ofninn í 200°C.

Blandið öllum hráefnum saman í skál fyrir utan sveppina.

Veltið sveppunum næst upp úr blöndunni, setjið í eldfast mót og bakið í ofninum í 40 mínútur.

Gott er að velta sveppunum upp úr marineringunni nokkrum sinnum á meðan þeir eru í ofninum.

Vínó mælir með: Muga Reserva með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is