Chick-fil-A“ borgari

Fyrir 4

Kjúklingaborgari uppskrift

Hráefni

2 stórar kjúklingabringur

100 ml safi af súrum gúrkum í krukku

50 ml vatn

100 ml nýmjólk

1 egg

150 g hveiti

3 msk. flórsykur

½ tsk. lyftiduft

1 tsk. paprikuduft

1 tsk. hvítlauksduft

1 tsk. salt

½ tsk. pipar

½ tsk. chilliduft

½ tsk. cheyenne pipar

Steikingarolía (um 400 ml)

4 þykkar ostsneiðar

 

Aðferð

Byrjið á því að „buffa“ bringurnar niður með buffhamri og skipta þeim síðan í tvo hluta, svo úr verði fjögur stykki.

Blandið vatni og safa af súrum gúrkum saman í skál og leggið kjúklingabringurnar í skálina. Reynið að láta vökvann þekja þær alveg, setjið í kæli í um 30 mínútur á meðan annað er undirbúið.

Pískið saman egg og mjólk í eina skál og hveiti, flórsykur og krydd í aðra.

Hitið steikingarolíu í djúpum potti. Þegar hún hefur náð um 175°C er hægt að byrja að steikja kjúklinginn (ég var með á stillingu 7 af 9 nánast allan tímann hjá mér).

Byrjið á því að dýfa kjúklingabitnum í eggjablönduna, því næst í hveitiblönduna og þjappa vel hveiti alls staðar. Síðan setja varlega ofan í heita olíuna með töng.

Steikið hvern bita í um 4-5 mínútur, snúið að minnsta kosti einu sinni á meðan.

Raðið þeim á grind, setjið ostsneið strax ofan á og leyfið umfram olíu að leka af.

 

Chick-fil-A sósa uppskrift

Hráefni

100 g majónes

1 tsk. Dijon sinnep

3 tsk. gult sinnep

2 msk. BBQ sósa

2 msk. hunang

½ tsk. hvítlauksduft

½ tsk. paprikuduft

1 tsk. sítrónusafi

 

Aðferð

Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.

Annað meðlæti og samsetning

Hráefni

1 poki vöfflufranskar

4 hamborgarabrauð

Blaðsalat

1 buff-tómatur (eða 2 minni)

Súrar gúrkur

Aðferð

Bakið franskarnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Gott að setja þær í ofninn á svipuðum tíma og þið byrjið að steikja kjúklinginn.

Skerið niður tómat og salat og takið til súrar gúrkur.

Steikið hamborgarabrauðin á pönnu, stutta stund á hvorri hlið.

Raðið næst hamborgaranum saman: Smyrjið bæði brauðin með sósu, Leggið kálið neðst, því næst tómatinn, svo kjúklinginn og loks súru gúrkurnar.

Berið fram með vöfflufrönskum og sósu.

Vínó mælir með: Stella Artois með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is

Share Post