Lífræn vín fyrir þig og umhverfið

Lífrænar matvörur ryðja sér til rúms í sífellt meiri mæli enda vex eftirspurnin jafnt og þétt á heimsvísu. Síðustu 6-7 ár hefur krafa neytenda um hreinleika og rekjanleika matar- og drykkjarvöru orðið ríkari og margir aðhyllast orðið lífrænan lífstíl. Vínframleiðendur hafa ekki farið varhluta af þessari þróun og í dag talið að lífrænir vínframleiðendur séu tæplega 2000 talsins um allan heim. Þar af eru næstum 900 þeirra í Frakklandi einu og sér. Eftirspurnin er klárlega til staðar enda hefur neysluaukning á lífrænum vínum farið fram úr aukningunni á neyslu vína sem framleidd eru á hefðbundinn máta.

Misjafnt er milli landa hvað felst nákvæmlega í skilgreiningunni “lífrænt” en grundvallarmunurinn á milli lífrænt framleiddra vína og hefðbundinna byggir á því hvort einhver geymslu- eða varðveisluefni eru notuð við víngerðina. Undir slík efni falla meðal annars efni á borð við kemískan áburð, skordýraeitur, sveppaeitur og illgresisbana. Ef framleiðslu víns er skipt í tvö meginskref, vínræktun á vínekrunni og svo víngerðina (gerjun og átöppun) þá á skilgreiningin á lífrænt ræktuðu víni yfirleitt aðeins við fyrra skrefið. Þeir sem ákafast mæla með lífrænni ræktun nefna gjarnan þá skoðun sína að með því að sleppa kemískum efnum alfarið njóti bragðið sín enn betur og einkenni landsvæðisins (e. terroir) skili sér í ríkari mæli alla leið í glasið hjá þeim sem nýtur vínsins hverju sinni.

Bræðurnir Rafael og José Guilisasti eru óumdeilanlega meðal frumherja í ræktun og framleiðslu lífrænna vína. Víngerðin Bodegas Emiliana í Chile var stofnuð árið 1986 en þegar á árunum fyrir aldamótin síðustu þótti þeim eins og léttvínsmarkaðurinn væri um það bil að taka breytingum, ekki síst hvað varðaði þá síauknu meðvitund meðal neytenda um vörurnar sem þeir keyptu. Bræðurnir sáu að fólk tók að vanda valið á vínum sem það keypti, ekki bara af persónulegum heilsufarsástæðum heldur spilaði virðing fyrir náttúrunni og umhverfinu líka inn í, svo ekki var um að villast.

Þeir tóku sig því til og afréðu að umbreyta víngerð í heimalandi þeirra, Chile, þannig að framleiðslan væri öll 100% lífræn. Markmið þeirra var að sönnu háleitt – að framleiða vín í hæsta gæðaflokki og ganga um náttúruna með virðingu um leið. Fékk Emiliana ISO 14001-vottun árið 2001, fyrstir vínhúsa í Chile. Í dag er Emiliana fullvottað ekki einungis sem lífrænn ræktandi heldur lífeldur (biodynamic) ræktandi og er stærstur sinna tegundar í Chile og víðar.

Fyrir Emiliana eru lífræn ræktun ástríða og menn trúa því að með þessum aðferðum skili vínekrurnar meiru af sér og gæði þrúganna og vínsins verði þar af leiðandi meiri og betri fyrir neytandann. Samanstendur framleiðslan þeirra af breiðri línu af lífrænt framleiddum vínum sem hafa sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum. Hér á landi má finna í hillum Vínbúðanna, Adobe vínin, sem eru aðeins brot af þeim vínum sem Emiliana vínhúsið framleiðir. Adobe vínin hafa undan farin misseri notið gríðarlegra vinsælda hér á landi enda vaxandi áhersla á heilsusamlegt líferni og umhverfisvernd hér á landi líkt og annars staðar í heiminum.

 

Adobe Reserva Chardonnay

Lýsing: Ljóssítrónugult. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Pera, sólberjalauf, sítrus, grösugt.

Passar vel með: Fiskur, skelfiskur, kjúklingur og pasta.

Vinotek segir;

„Frábær kaup. Besta Chardonnay-vínið sem við höfum smakkað í Adobe-línunni til þessa. Hálf viðbótarstjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.“

Adobe Reserva Sauvignon Blanc

Lýsing: Ljóslímónugrænt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Límóna, sólberjalauf, steinefni.

Passar vel með: Fiskur, skelfiskur og grænmetisréttir.

Adobe Reserva Rose

Lýsing: Föllaxableikt. Létt fylling, sætuvottur, fersk sýra. Apríkósa, pera, kakó.

Passar vel með: fiskur, kjúklingur, grænmetisréttir og smáréttir.

Vinotek segir;

„Það er fölbleikt á lit, fersk angan með þroskuðum rauðum eplum, jarðarberjum og rósum. Ferskt og þurrt í munni. Fínasta rósavín.“

Adobe Reserva Cabernet Sauvignon

Lýsing: Rúbínrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, sólber, lyng.

Passar vel með: Lambakjöti, svínakjöti og grillmat.

Vinotek segir;

Bjartur og léttkryddaður sólberjaávöxtur, bláber mild kaffibaunangan í nefi, mjúkt í munni, þægilegt, mjúk tannín. Mjög góð kaup.

Adobe Reserva Syrah

Lýsing: Rúbínrautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Brómber, sólber, lyng, pipar.

Passar vel með: Lambakjöti, svínakjöti, grillmat og tapas.

Vinotek segir;

Þetta er hörkufínt og elegant Syrah vín, mildur og dökkur berjaávöxtur, bláber og krækiber, þægilega kryddaður, mildur pipar undir niðri og reykur, ferskur og fínn ávöxtur í munni, áferðin mjúk og þétt.“

Adobe Reserva Carmenere

Lýsing: Dökkrúbínrautt. Þétt meðalfylling, ósætt, mild sýra, þétt tannín. Brómber, plóma, jurtakrydd, eik.

Passar vel með: Lambakjöti, nautakjöti og grillmat.

Adobe Reserva Merlot

Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Plóma, brómber, laufkrydd, jörð.

Passar vel með: Svínakjöti, kjúkling og grillmat.

Vinotek segir;

„Merlot-vínið hefur lengi verið eitt af mest heillandi vínunum í þessari línu, stíllinn stöðugur á milli ára. Dökkt á lit, fjólublátt, í nefi bláber og sólber, nokkuð kryddað, smá vottur af kaffi, mjúkt og þægilegt í munni.“

Adobe Reserva Pinot Noir

Lýsing: Ljóskirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Hindber, jarðarber, laufkrydd, skógarbotn.

Passar vel með: Fuglakjöti, kjúkling, léttri villibráð og ostum.

Vinotek segir;

 „Það er fallega kirsuberjarautt og ávöxturinn er bjartur og rauður, jarðarber, hindber og kirsuber, nokkuð kryddaður með ferskri og þægilegri sýru.“

Emiliana Brut Organic

Lýsing: Ljóssítrónugult. Ósætt, létt freyðing, fersk sýra. Epli, ananas, ristað brauð.

Passar vel með: Sushi, grænmetisréttir og smáréttir.

Víngarðurinn segir;

 „Ljóst og fallegt á lit, freyðir þétt og fallega, angan fersk, græn og gul epli, einnig vottur af suðrænni ávöxtum, milt, létt, þurrt og þægilegt.“

Salvaje Syrah Roussanne

Lýsing: Dimmfjólurautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, krækiber, lyng, sveit.

Passar vel með: Nautakjöt, lambakjöt, villibráð, grillmat.

Víngarðurinn segir;

 Þetta er vín fyrir þá sem vilja mikil vín frá Nýjaheiminum án þess að fórna glæsileikanum. Gengur vel með bragðmikilli íslenskri villlibráð, rjúpu og gæs en einnig með öllu hinum hátíðarkjötinu.“

Emiliana Coyam

Lýsing: Dökkrúbínrautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Dökk ber, barkarkrydd, súkkulaði, eik.

Passar vel með: Nautakjöt, lambakjöt, villibráð og pottréttir.

Víngarðurinn segir;

 Verulega athyglisvert og skemmtilegt rauðvín og einfaldlega besta samsetning sem ég hef reynt með íslenskri rjúpu. Fyrst og fremst villibráðarvín en hún þarf að vera kröftug.“

 

Post Tags
Share Post