Gull í glasi fyrir góðar stundir

Eftir því sem skammdegið verður meira og veður kaldara er þess meiri ástæða til að hafa það sem huggulegast innandyra, gjarna með eitthvað notalegt í glasi sem er í senn ljúft og svolítið sparilegt, því aðventan er jú að ganga í garð garð og stemningin eftir því hátíðleg. Sérrí er drykkur sem smellpassar við desember, nógu snarpt til að ylja manni án þess að vera of kröftugt. Svo er það einkar fallegt á litinn, rétt eins og glóandi gull.

 

Ekkert cherry í sérrí

Margir tengja orðið „sérrí“ ósjálfrátt við enska orðið „cherry“ enda eru þau keimlík á blaði. Sérrí hefur þó ekkert með kirsuber að gera; þess í stað er drykkurinn búinn til úr ljósum vínberjum. Enska orðið „sherry“ er hinsvegar dregið af spænska nafninu Jerez, en drykkurinn á rætur sínar að rekja til vínræktunarsvæða í nágrenni spænsku borgarinnar Jerez de la Frontera í Andalúsíu. Jerez varð semsagt að „sherry“.

Drykkur í boði hr Drake

Enskar vinsældir sérrís tengjast einna helst því er Francis Drake, sá víðfrægi sæfari og flotaforingi, sigraði spænsku borgina Càdiz árið 1587. Càdiz var með mikilvægari hafnarborgum Spánar og þar lágu við festar drekkhlaðin skip tilbúin að leggja í hann til innrásar í England. Drake var hins vegar fyrri til og hafði fullnaðarsigur. Hann gereyðilagði spænska flotann þegar hann hafði hirt farm skipanna og þar á meðal voru 2900 tunnur af sérríi – eitt merkasta herfang hans – og í kjölfarið sló sérrí í gegn um gervallt England. Var það bæði vegna  þess að sérrí var jú óneitanlega drykkur sigurvegarans en ekki síður því það var svo skrambi gott, að Englendingum fannst.

Fágun og fínimannaheit

Allar götur síðan hefur sérrí haft yfir sér áru fágunar og séntilmennsku, drykkur þeirra sem kunna gott að meta og temja sér hófmennsku og eldrimanna stíl. Enda er ekki út í bláinn að þeir bræður og góðkunningjar íslenskra sjónvarpsáhorfenda, Frasier og Niles Crane, ræddu jafnan lífsins gátur, gagn og nauðsynjar yfir sérrítári. Það kom ekkert annað til greina þar. Hitt er annað mál að sérrí batnar ekki með tímanum þegar það hefur á annað borð verið sett á flösku. Það geymist takmarkað og þess ber því að njóta fljótlega eftir opnun. Geymið  sérrí á köldum og dimmum stað og látið flöskuna standa, því það lágmarkar snertingu vökvans við loft.

Jólum þetta í gang!

Flestir hafa gegnum tíðina notið sérrís í svokölluðum „copita“ glösum, sem eru nett staup á fæti. Þetta hefur þó tekið breytingum hin seinni ár og nú um stundir hella margir sérríi í fallegt vín glas á fæti með klaka og til að gera drykkinn ennþá hátíðlegri er kjörið að setja appelsínusneið út í. Skál og njótið af ábyrgð!