Francois d’Allaines Bourgogne Pinot Noir 2020

 

 

Vinotek segir;

Francois D‘Allaines er með vínhús sitt í þorpinu Dermigny í suðurhluta Cote-de-Beaune. Þetta er meira það sem maður myndi kalla bóndabýli en vínhús nema hvað að d‘Allaines er ekki með fjós eða fjárhús við hliðina á húsinu sínu líkt og íslenskir bændur heldur litla víngerð og vínkjallara. Allaine hefur framleitt vín frá 1996 og hefur byggt upp góð sambönd við bændur á svæðinu sem hann kaupir þrúgur af. Þetta litla vínhús hefur byggt upp traust orðspor fyrir vönduð vín sem draga vel fram karaktereinkenni suðurhluta Búrgundarsvæðisins. Við heimsóttum Francois d’Allaines á sínum tíma og má lesa nánar um þessa sjarmerandi víngerð hér.

Fagurrautt, litur ágætlega djúpur fyrir Pinot Noir, berjabaka í nefi, þykkur og mjúkur rauður berjaávöxtur, kirsuber, tannín eru mjúk og einstaklega fínleg fyrir þetta ungt vín, áferðin slétt og þykk. Það eru engin horn á þessu víni. Mjög vel gert. 3.999 krónur. Frábær kaup. Með lambahrygg eða file.

Post Tags
Share Post