Í hverjum mánuði koma ný vín til reynslusölu í Vínbúðunum í Kringlunni, Heiðrúni, Skútuvogi og Hafnarfirði. Fyrir ykkur sem hafið gaman að því að breyta til og prófa ný vín mælum við með að þið prófið þessi neðan greindu vín, en þau voru einmitt að byrja í reynslusölu Vínbúðanna í byrjun mánaðarins.
Salvaje Syrah Roussanne
Bragðlýsing: Dimmfjólurautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, krækiber, lyng, sveit.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Chile
Framleiðandi: Laurent Miquel
Þrúga: Roussanne, Syrah
Verð: 2.999 kr.
Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Passar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.
Tenuta Meraviglia rautt
Bragðlýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Kirsuber, sólber, sveit, barkarkrydd, jurtakrydd, eik
Styrkleiki: 14% vol
Land: Ítalía
Hérað: Toskana
Upprunastaður: Bolgheri
Framleiðandi: Dievole
Verð: 3.499 kr.
Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Passar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.
Tenuta Meraviglia Vermentino
Bragðlýsing: Fölgult. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Epli, sítrus, léttir olíutónar.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Ítalía
Hérað: Toskana
Upprunastaður: Bolgheri
Framleiðandi: Dievole
Verð: 2.999 kr.
Passar með: Meðalfyllt vín, best sem matarvín. Gott með fiskréttum, skelfiski, ljósu kjöti og pasta.
Pagos del Galir Mencia
Bragðlýsing: Rúbínrautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Krækiber, kirsuber, jurtakrydd, eik. Höfugt.
Styrkleiki: 14,5% vol
Land: Spánn
Framleiðandi: Virgen del Galir
Þrúga: Mencia
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Passar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.
Laurent Miquel Solas Chardonnay
Bragðlýsing: Föllímónugrænt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Vínber, melóna, pera.
Styrkleiki: 13% vol
Land: Frakkland
Framleiðandi: Laurent Miquel
Þrúga: Chardonnay
Verð: 2.199 kr.
Passar með: Meðalfyllt vín, best sem matarvín. Gott með fiskréttum, skelfiski, ljósu kjöti og pasta.