Laurent Miquel Albarino 2015

Vinotek segir;

„Albarino-þrúguna tengja flestir við Galisíu í norðausturhluta Spánar og norðurhluta Portúgal. Það bendir þó margt til að upphaflega hafi þessa þrúgi borist þangað frá Frakklandi með pílagrímum er gengu Jakobsveginn til borgarinnar Santiago de Compostela. Laurent Miquel í suðurhluta Frakklands hefur á undanförnum árum unnið að því að „endurheimta“ Albarino til Frakklands og ræktar hana á ekrum sínum í Languedoc. Þetta er ljóst, fölgult vín með grænum tónum. Í nefi fyrst og fremst sítrus, lime-börkur og greipávöxtur, skarpt, piprað, fersk og fín sýra í munni.

2.499 krónur. Mjög góð kaup. Fordrykkur, sumarlegt og fínt.“

Share Post