Cune Imperial Reserva 2014

Vínótek segir;

Það er rétt tæp öld frá því að vínhúsið Cune setti fyrsta Imperial-vínið á markað en nafnið má rekja til þess að flöskustærðin sem vínið var tappað á fyrir Bretlandsmarkað var af stærðinni „Imperial Pint“.

Imperial hefur alla tíð síðan verið eitt af helstu vínum Rioja og það viðmið sem önnur vínhús horfa gjarnan til.  Imperial-vínin koma af 28 hektara ekrum Cune á svæðinu Rioja Alta og þess má geta að Gran Reserva 2004 af Imperial var valið vín ársins af timaritinu Wine Spectator árið 2013.

Þetta er klassískt Rioja-vín í besta skilningi þess orðs, dökkmórautt með angan af heitum, þroskuðum berjum, vanillu og þurrkuðum kryddum, smá reykelsi,  þykkt og kjötmikið með kröftugum tannínum og góðri sýru, með langa og mikla endingu.

3.999 krónur. Með bestu lamba og nautasteikunum.

Share Post