Amalaya Blanco De Corte 2018

 

 

Vinotek segir;

„Cafayete-dalurinn í Salta-héraði í norðurhluta Argentínu er hæsta víngerðarsvæði veraldar og á þessu skrjáfþurra og hrjóstruga svæði eru gerð merkilega góð vín. Amalaya er eitt af helstu vínhúsunum í Salta og er þetta hvítvín blanda úr tveimur þrúgum sem að njóta sín vel í Salta, Torrontes (85%)  og Riesling. Vínið er fölt á lit, krydduð blómaangan, jasmín og sætar kantalópumelónur og límóna. Það er þurrt og ferskt, langt og míneralískt í lokin. 1.999 krónur. Frábær kaup. Magnað vín fyrir peninginn og hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða. Með asískum mat, hvort sem er taílenskum, indverskum eða sushi.

Post Tags
Share Post