Ginger cosmopolitan

Uppskrift Marta Rún Femme 

Innihald (einn drykkur)

3 cl vodka (sirka eitt skot)

1.5 cl Cointreau líkjör

3 cl af trönuberjasafa

Safi úr 1/2 lime.

ca. þumall af engiferi og sneið til að skreyta

Aðferð:

  1. Byrjið á því að fylla glasið með klökum til að kæla það.
  2. Setjið í hristara hráefnin og fyllið upp með klökum og hristið, hristið og hristið.
  3. Fjarlægið klakana úr glasinu og hellið svo úr hristaranum ofan í glösin en sigtið klakana frá.
  4. Skerið þunna sneið af engiferinu og notið sem skraut.

Uppskrift Marta Rún hjá Femme.is

 

 

Share Post