USA kjúklingur

Fyrir 4-5

Grillaður kjúklingur uppskrift

Hráefni

6 stk. kjúklingalæri með legg

Ólífuolía

Organic Liquid kryddlögur með hvítlauk

Kjúklingakrydd

Aðferð

Hitið ofninn í 210°C.

Penslið ofnskúffu með ólífuolíu og raðið lærunum þar ofan í.

Berið þunnt lag af ólífuolíu á hvert læri og einnig Organic Liquid hvítlaukslög (um ½ tsk. á hvora hlið).

Kryddið vel með kjúklingakryddi á báðum hliðum.

Eldið í 40-45 mínútur og leyfið að standa í 5-10 mínútur áður en skorið er í kjötið.

Kartöflumús uppskrift

Hráefni

1,2 kg kartöflur (gular eða bökunar)

40 g smjör

2 msk. sykur

1 tsk. salt

200 ml nýmjólk

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni (2 tsk.salt). Mér finnst best að flysja þær fyrst og skera til helminga (í fernt ef þið eruð með bökunarkartöflur) því þá eru þær tilbúnar í hrærivélina um leið og þær eru mjúkar.

Setjið kartöflur, smjör, sykur og salt í hrærivél og blandið á lágum hraða með K-inu. Bætið mjólkinni saman við í litlum skömmtum. Bætið við mjólk ef þið viljið þynnri mús.

Rjómakenndur maís uppskrift

Hráefni

6 heilir ferskir maískólfar (um 650 g maískorn þegar búið er að skera af stönglunum)

100 g smjör

30 g hveiti

250 ml matreiðslurjómi

Salt og pipar

1 tsk. Organic Liquid kryddlögur með hvítlauk

1 msk. hunang

Aðferð

Skafið maískornin af stönglunum og steikið við meðalháan hita upp úr smjörinu, saltið og piprið og leyfið að malla/eldast í um 5 mínútur.

Hrærið hveitinu  næst saman við og hellið svo rjómanum út á pönnuna, hækkið hitann í smá stund og hrærið vel allan tímann. Þegar blandan þykknar má lækka alveg niður hitann og krydda með Organic Liquid, salti og pipar eftir smekk ásamt því að hræra hunanginu saman við.

Vínó mælir með: Stella Artois með þessum rétt.

Uppskrift: Gotteri.is