Trufflu Bernaise sósa

 

 

Hráefni

4 eggjarauður

400 g brætt smjör

2-3 tsk bearnaise essens (magn eftir smekk)

½ tsk truffle olía (fæst í flestum betri stórmörkuðum)

u.þ.b. 2 tsk estragon (magn eftir smekk)

Pipar (magn eftir smekk)

Salt með trufflum fæst til dæmis í Dimmverslun

Aðferð

  • Brjótið eggin og aðskilja eggjahvítu og eggjarauður.
  • Bræðið smjörið á vægum hita.
  • Þeytið eggjarauðurnar varlega í nokkra stund í hrærivél/rafmagnsþeytara þar til þær eru orðnar léttar, ljósar og mynda borða. (takið þeytarann upp reglulega og teiknið 8 snögglega með því sem lekur af þeytaranum ofan í skálinni. Ef það tekst að teikna áttu og hún sést greinilega í örfáar sek. þá eru eggjarauðurnar tilbúnar).
  • Hellið smjörinu út í eggjarauðurnar í lítilli bunu með þeytarann rólega í gangi.
  • Setjið bearnaise essens út í sósuna og hrærið saman, bætið því næst estragon út í og hrærið saman.
  • Bætið trufflu olíu út í og hrærið saman.
  • Saltið og piprið sósuna eftir smekk. Gott að byrja á litlum skammti og auka svo eftir smekk.

Uppskrift: Linda Ben