Pizza með Ítölsku salami, rauðlauk, rósmarín og heimalagaðri pizzasósu.

 

Fyrir 2-3

 

Hráefni

Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með

Sykur, 10 g

Borðsalt, 7 g

Þurrger, 7 g

Ólífuolía, 2 msk

Vatn, 280 g

San Marzano tómatar, 1 dós

Basil, 1 stilkur + lauf

Hvítlauksrif, 1 stk lítið

Hunang, 1 tsk

Piccante, Sterk Ítölsk salami, 75 g / Tariello, fæst í Hagkaup

Rauðlaukur, ½ lítill

Rósmarín, 1 stór stilkur

Mozzarellakúla, 1 stk

Chilifræ, eftir smekk

Parmesanostur, eftir smekk

Þessi uppskrift er svakalega einföld og skilar manni æðislegum pizzabotni en hún krefst smá þolinmæði þar sem deigið þarf að taka sig í 2 daga áður en pizzurnar eru bakaðar. Allt vel þess virði samt!

 

  • Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni.
  • Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.
  • Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund og myndið úr því kúlu. Spreyið eða smyrjið stóra skál með olíu og færið deigið í skálina. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.
  • Takið deigið úr kæli 2 klst áður en baka á pizzurnar. Skiptið deiginu í tvennt og myndið úr því 2 kúlur. Færið kúlurnar í olíusmurðar skálar og hyljið með matarfilmu. Látið deigið jafna sig við stofuhita í amk 2 klst.
  • Stillið ofn á 250 °C með yfir og undirhita
  • Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í um 1 mín eða þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
  • Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, basil stilknum og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann aðeins svo það malli vel í pottinum. Látið malla í um 10 mín og smakkið svo til með salti.
  • Setjið bökunarplötu inn í ofninn til þess að hitna á meðan botnarnir eru mótaðir.
  • Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 25 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur. Færið botninn yfir á bökunarpappír
  • Sneiðið salami í þunnar sneiðar, saxið rauðlauk gróflega og týnið rósmarín laufin af stilknum og saxið gróflega.
  • Smyrjið sósu á botninn og rífið mozzarellaost yfir. Dreifið salami yfir ásamt rauðlauk, rósmarín, chiliflögum eftir smekk og rífið að lokum parmesanost yfir.
  • Takið heita bökunarlötuna úr ofninum og dragið pizzuna varlega á plötuna. Bakið pizzuna í næstefstu grind í ofni í um 8-10 mín eða þar til osturinn er farinn að bubbla og kantarnir eru búnir að lyftast og taka fallegan lit

Vínó mælir með: Adobe Reserva Merlot  með þessum rétt.

Uppskrift og myndir:  Matur & Myndir