Tortellini með kjúkling og sveppum í hvítlauksosta rjómasósu.

Uppskrift: Linda Ben

Hráefni:

350 g Tortellini fyllt með osti

3 kjúklingabringur

Ólífu olía

Salt og pipar

½ laukur

250 g sveppir

50 g smjör

3 hvítlauksgeirar

½ l rjómi

Kryddostur með hvítlauk

Ferskt basil

Parmesan ostur

 

Aðferð:

  • Sjóðið tortellini samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
  • Skerið kjúklingabringurnar smátt niður og steikið upp úr ólífu olíu og salt og pipar þar til eldað í gegn. Takið kjúklinginn af pönnunni en ekki þrífa pönnuna.
  • Skerið laukinn smátt niður og bætið út á pönnuna og steikið. Skerið sveppina frekar gróft niður og bætið á pönnuna ásamt smjöri. Steikið þar til mjúkir í gegn. Skerið hvítlaukinn smátt niður eða pressið með hvítlaukspressu út á pönnuna, steikið létt og bætið svo rjómanum strax út á. Leyfið að malla í smá stund við vægan hita.
  • Rífið kryddostinn niður og bætið út á pönnuna og látið hann bráðna saman við. Bætið kjúklingnum aftur út á pönnuna. Smakkið til með salti og pipar.
  • Setjið pastað í fallegt ílát, hellið sósunni yfir og berið fram með fersku basil og parmesan.

Vinó mælir með Adobe Reserva Pinot Noir með þessum rétt.