Grænmetis lasagna með sveppum, spínati og vel af osti

Uppskrift: Linda Ben

Hráefni:

Fersk lasagna blöð

500 g sveppir

1 rauðlaukur

1 msk ólífu olía

70 g tómatpúrra

450 ml einföld pastasósa

1 dós hakkaðir tómatar

100 g spínat

250 g kotasæla

Rifinn mosarella ostur (mjög gott að kaupa rúllu af mosarella og rífa hálfa niður)

1 msk þurrkað oreganó

1-2 tsk þurrkað basil

1 tsk þurrkað timjan

½ tsk þurrkað rautt chillí

½ tsk salt

½ tsk pipa

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
  2. Skerið sveppina niður í bita, þannig að áferðin líkist grófu hakki. Steikið þá á þurri pönnu á meðal heitri pönnu og setjið klípu af salti yfir. Fljótlega byrjar vökvi að koma út úr sveppunum.
  3. Skerið rauðlaukinn smátt niður og setjið út á pönnuna með sveppunum ásamt ólífuolíu og steikið þar til vökvinn af sveppunum hefur gufað upp.
  4. Setjið því næst er tómatpúrru bætt á pönnuna, pastasósu og hökkuðum tómötum. Kryddið með oreganó, basil, timjan, chilli, salti og pipar. Steikið áfram á pönnunni í um það bil 10 mín eða þar til sósan er orðin þykk og kraftmikil.
  5. Setjið þunnt lag af sósu í botninn og setjið lasagna blöð yfir sósuna. Setjið 2-3 msk af kotasælu yfir, ásamt spínati og rifnum mosarella. Endurtakið þessi skref 2-3x og toppið með rifnum mosarella.
  6. Bakið inn í ofni í 20 mín. Leyfið lasagnanu að taka sig í 10 mín áður en það er skorið.

Vinó mælir með Cune Crianza með þessum rétt.

 

Post Tags
Share Post