Kjúklingur í rjómaostasósu með sveppum og estragon

Fyrir 3-4

Hráefni

600 g úrbeinuð kjúklingalæri

1-2 msk smjör til steikingar

1 lítill laukur, smátt skorinn

8-10 sveppir, skornir í sneiðar

2 dl rjómi

½ pakkning Philadelphia rjómaostur

1 msk dijon sinnep

3-4 tsk estragon

1 tsk kjúklingakraftur frá Oscar

Salt og pipar eftir smekk

Tagliatelline frá De Cecco

Aðferð

  1. Byrjið á því að steikja kjúklinginn upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Steikið þangað til að hann er eldaður í gegn og takið til hliðar.
  2. Steikið lauk og sveppi upp úr smjöri á sömu pönnu.
  3. Bætið út í rjóma, rjómaosti, dijon sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti, salti og pipar. Hrærið saman og látið malla í smá stund. Mæli með að smakka sósuna til.
  4. Sjóðið tagliatelline eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  5. Blandið kjúklingnum saman við sósuna, berið fram með tagliatelline og njótið!

 

Vinó mælir með Ramon Roqueta Reserva með þessum rétti.

Uppskrift: Hildur Rut