Hægeldaður lambapottréttur
Fyrir 4-6:
Lamba prime, 1 kg
Gulrætur, 200 g
Rauðlaukur stór, 1 stk
Sellerístilkar, 2 stk
Perlulaukur, 12 stk
Tómatpúrra, 30 ml
Herbs de Provence, 20 ml / Pottagaldrar
Lambakraftur, 20 ml / Oscar
Rósmarín ferskt, 1 grein
Lárviðarlauf, 2 stk
Rauðvín, 1 dl
Hunang, 10 ml
Tómatar, 2 dósir
Hvítlauksrif, 10 stk
Steinselja, 8 g
Hveiti, nóg til að hylja kjötið
3-3.5 klst
Aðferð:
- Skrælið og skerið rauðlauk í fernt, skrælið perlulaukana, hvítlauksrifin og skerið sellerí og gulrætur í grófa bita.
- Skerið lambið í um 3 cm bita og veltið upp úr hveiti. Hitið olíu í djúpum potti (Helst steypujárnspotti) og brúnið kjötið vel, en þetta er best að gera í nokkrum skömmtum svo kjötið brúnist sem best. Færið á disk til hliðar.
- Steikið grænmetið í nokkrar mín í pottinum og bætið þá tómatpúrru út í og steikið í nokkrar mín til viðbótar. Bætið rauðvíni út í og látið sjóða niður í smástund.
- Bætið tómötum, lambakrafti, kjöti, herbs de provance, rósmarín, lárviðarlaufum og hunangi út í pottinn og náið upp suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í pottinum og látið svo malla undir loki í um 2.5-3 klst eða þar til kjötið er orðið svo mjúkt að það losnar auðveldlega í sundur. Fleytið fituna ofan af réttinum og smakkið til með salti og pipar.
- Saxið steinselju og hrærið saman við réttinn rétt áður en maturinn er borinn fram.
- Berið fram með td hvítlauks- kartöflumús eða bökuðu smælki.
Vínó mælir með: Ramon Roqueta Reserva með þessum rétt.