Súrdeigspizza með salsiccia, rósmarín og chilihunangi

 

Súrdeigs pizzadeig, 2x 300 g / T.d. Frá Brikk Bakarí

Salsiccia grillpylsa, 200 g / Fæst frosin frá Tariello í Hagkaup, Krónunni og Melabúðinni

Pizzasósa, 200 ml

Mozzarella rifinn, 200 g

Rauðlaukur, 1 lítill

Rósmarín, 1 stilkur

Klettasalat, 25 g

Parmesan, eftir smekk

Chilihunang, eftir smekk (Sjá uppskrift neðar)

Aðferð:

 

Takið pizzadeigið úr kæli amk 2 klst fyrir eldun.

Skerið utan af salsiccia pylsunum og losið kjötið í sundur. Steikið á heitri pönnu þar til kjötið er fulleldað. Geymið á disk til hliðar

Stillið ofninn á hæsta hita (á pizza stillingu ef það er í boði).

Sneiðið rauðlauk í þunnar sneiðar eftir smekk. Saxið rósmarín gróflega.

Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Hafið bökunarpappír kláran til að vinna deigið á.

Setjið smá hveiti á hendurnar og notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 28 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.

Raðið sósu, salsiccia, osti, rósmarín og rauðlauk á pizzuna.

Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pizzzuna á ofnpappírnum á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt.

Toppið pizzuna með klettasalati, rifnum parmesan og chilihunangi eftir smekk.

 

Vinó mælir með: Cune Crianza með þessum rétt.

Uppskrift: Matur og Myndir