Spaghetti puttanesca

Hráefni

Spaghetti, 200 g

Ansjósuflök, 3 stk / Fást t.d. í Krónunni og Melabúðinni

Hvítlaukur, 3 rif

Rauðar chiliflögur, 0,5 tsk eða meira eftir smekk

Oregano þurrkað, 0,5 tsk

Hunang, 0,5 tsk

Niðursoðnir tómatar, 1 dós / Ég notaði San Marzano tómata

Kalamata ólífur (heilar & steinlausar), 10 stk

Grænar ólífur (heilar & steinlausar), 10 stk

Capers, 1 msk

Breiðblaða steinselja, 5 g

Góð handfylli af ferskri basilíku

Fullt af parmesan

Smjörklípa

Hvítlauksbrauð sem meðlæti

Aðferð

Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af salti og náið upp suðu.

Saxið ansjósuflök eins smátt og hægt er. Pressið hvítlauk. Skerið ólífur í tvennt.

Hitið 2 msk af ólífuolíu á pönnu við miðlungshita og steikið hvítlauk í stutta stund þar til hann byrjar að ilma. Bætið ansjósum, capers og rauðum chiliflögum út á pönnuna og steikið í um 1 mín.

Bætið niðursoðnum tómötum (kremjið tómatana með höndunum áður ef þeir eru heilir), 150 ml af vatni, oregano, hunangi og ólífum út á pönnuna og látið krauma í 10-15 mín á meðan pasta er soðið eða þar til sósan er farin að þykkjast hæfilega.

Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum frá framleiðanda en takið um 1 dl af pastavatni til hliðar áður en vatnið er sigtað frá pastanu þegar það er tilbúið.

Bætið smjörklípu út í sósuna og smakkið sósuna svo til með salti. Bætið spaghetti út í sósuna og veltið því um þar til það er vel hulið sósu. Þynnið sósuna með pastavatninu ef þarf.

Saxið basiíku og steinselju og blandið saman við réttinn á pönnunni ásamt rausnarlegu magni af parmesan.

Toppið að lokum með svörtum pipar, meiri parmesan og kryddjurtum.

Vinó mælir með: Lealtanza Reserva með þessum rétti.

Uppskrift: Matur og Myndir