Smárréttaveisla

Fylltar döðlur í hnetuhjúp

Um 15 stykki stórar, ferskar döðlur

150 g Mascarpone ostur

2 msk. hunang

50 g saxaðar hnetur/möndlur að eigin vali (til dæmis pekanhnetur, kasjúhnetur, pistasíur, möndlur, jarðhnetur)

Aðferð

Skerið rauf í döðlurnar, fjarlægið steininn og opnið „vasa“ í þær.

Blandið Mascarpone osti og hunangi saman í skál, setjið í sprautupoka/zip lock poka og fyllið „vasana“ á döðlunum.

Leggið rjómaostahliðina ofan í skál með söxuðum hnetum/möndlum og veltið aðeins um svo það festist vel af blöndu við hverja döðlu.

Geymið í kæli þar til bera á fram.

Bakaður ostur með sýrópshnetum

Dala Auður

3 msk. púðursykur

3 msk. sýróp

¼ tsk. Cheyenne pipar

50 g saxaðar pekanhnetur

Aðferð

Hitið ofninn í 200°C.

Setjið ostinn í eldfast mót og bakið í um 10 mínútur, útbúið sýrópshneturnar á meðan.

Setjið sykur, sýróp og pipar í pott og náið upp suðunni, lækkið hitann og hrærið vel allan tímann þar til sykurinn er uppleystur.

Hellið þá hnetunum saman við og blandið vel, setjið að lokum blönduna úr pottinum yfir ostinn þegar hann kemur úr ofninum.

Melónuspjót

10 lítil tréprik

5 sneiðar hráskinka

10 Mozzarella kúlur með basilíku

10 melónukúlur úr um ½ kantalópumelónu

Fersk basilíka

Aðferð

Raðið upp á prik, 1 mozzarellkúlu, ½ hráskinkusneið og einni melónukúlu.

Saxið basilíku og stráið yfir.

Tómatadásemd með bufala osti

1 dós kirsuberjatómatar

1 x bufala mozzarellakúla (stór)

Nokkrar teskeiðar grænt pestó

Virgin ólífuolía

Salt og pipar

Aðferð

Skerið tómata niður á disk.

Rífið ostinn niður í bita og blandið með tómötunum.

Hellið smá ólífuolíu yfir allt, saltið og piprið.

Setjið smá pestó hér og þar og ferska basilíku til skrauts.

Berið fram sem salat, með ristuðu baguette eða kexi.

Brushetta með pestó

12-14 sneiðar baguette brauð

1 Dala brie ostur

Rautt pestó (um 1 krukka)

Ólífuolía

Salt og pipar

Basilíka og litlir tómatar til skrauts

Aðferð

Hitið ofninn í 200°C.

Skerið brauðið niður, hellið/penslið smá ólífuolíu á sneiðarnar og ristið í um 3 mínútur í ofninum.

Mini pavlovur

Um 10 stykki

3 eggjahvítur

150 g púðursykur

350 ml þeyttur rjómi

150 g Þristur

Karamellusósa (þykk íssósa)

Aðferð

Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja aðeins að freyða og bætið þá sykrinum saman við í nokkrum skömmtum.

Stífþeytið þar til topparnir halda sér og sprautið litlar kökur á bökunarplötu (eða setjið á með tveimur matskeiðum), búið til smá holu í miðjunni með skeið til að betra sé að sprauta rjómanum á eftir bakstur.

Bakið við 110°C í rúma klukkustund og leyfið marengsinum síðan að kólna inn í ofninum í að minnsta kosti klukkutíma áður en rjóminn er settur á.

Stífþeytið rjómann og sprautið á hverja pavlovu, skerið Þrist í bita og stráið yfir og að lokum má „drissla“ karamellu yfir hverja köku.

Kjúklingaspjót og hvítlaukssósa – keypt tilbúið

Makkarónur – keyptar tilbúnar

Ostateningar með brómberjum

Vínó mælir með: Muga rósavín með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is