Lambalæri með kartöflugratíni og rauðvínssósu

Lambalæri uppskrift

Hráefni

Íslenskt lambalæri, um 2 kg

2 hvítlauksgeirar

Ólífuolía

Lambakjötskrydd

1 gulrót

½ laukur

400 ml vatn

Aðferð

Hitið ofninn í 170°C.

Þerrið lambalærið og berið á það smá ólífuolíu.

Skerið aðeins í lærið á nokkrum stöðum, takið hvítlauksrifin í 2-3 hluta og stingið ofan í raufarnar.

Kryddið vel með lambakjötskryddi allan hringinn.

Setjið í steikarpott ásamt gulrót og lauk (fyrir betra soð) ásamt vatninu.

Setjið lokið á og inn í ofn í um 1,5 klukkustund eða þar til kjarnhiti er á bilinu 60-70°C eftir því hversu vel þið viljið hafa það steikt.

 

Kartöflugratín uppskrift

Hráefni

Um 1 kg kartöflur

1 rauðlaukur

3 hvítlauksrif

50 g smjör

500 ml rjómi

1 msk. timían

Salt og pipar

Rifinn ostur (t.d Tindur)

Aðferð

Hitið ofninn í 190°C.

Flysjið kartöflurnar og skerið þær síðan í þunnar sneiðar (1/2 cm eða þynnri), leggið til hliðar.

Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og rífið niður hvítlaukinn. Steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til mýkist, kryddið til með salti og pipar. Takið af hellunni og geymið.

Raðið síðan saman í eldfast mót, eitt lag af kartöflum, smá af laukblöndu, smá timían, salt og pipar……endurtakið síðan þar til allar kartöflur eru búnar.

Þá má hella rjómanum yfir allt saman og rífa vel af osti yfir allt að lokum.

Bakið í ofninum undir álpappír í um klukkustund, takið álpappírinn þá af og leyfið ostinum aðeins að gyllast, í um 10 mínútur í viðbót.

Ofnbakaðar gulrætur

Hráefni

1 poki gulrætur (um 500 g)

2 msk. ólífuolía

1 msk. hlynsýróp

1 tsk. timían

1 tsk. salt

½ tsk. pipar

Aðferð

Skolið gulræturnar (flysjið ef þess þarf).

Setjið gulrætur ásamt öðrum hráefnum saman í eldfast mót, veltið öllu saman og bakið í um klukkustund eða þar til gulræturnar verða mjúkar í gegn.

Rauðvínssósa uppskrift

Hráefni

4 skalottlaukar

2 hvítlauksrif

30 g smjör

100 ml balsamikedik

350 ml Muga Reserva rauðvín

200 ml kjötsoð (frá lambalærinu)

300 ml vatn

1 lárviðarlauf

1 msk. timían

Salt og pipar

1-2 msk. Oscar fljótandi kjötkraftur

3-4 msk. dökkur sósujafnari (Maizena)

Aðferð

Saxið skalottlaukinn smátt niður og rífið niður hvítlauksrifin.

Steikið báðar tegundir af lauk upp úr smjöri við meðalhita, kryddið til með salti og pipar.

Hellið næst balsamikediki yfir laukinn og leyfið því að sjóða niður (gufa upp).

Því næst má hella rauðvíninu yfir allt og leyfa því sömuleiðis að sjóða aðeins niður og malla í nokkrar mínútur.

Bætið þá kjötsoði (frá lambalærinu) í pottinn ásamt vatni, lárviðarlaufi og timían, leyfið að malla.

Smakkið til með krafti og kryddi og þykkið með sósujafnara.

Sósan má malla eins lengi og þarf, hún verður bara betri fyrir vikið.

Vínó mælir með: Muga Reserva með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is