Hoisin risarækjupanna

Hráefni

 1 Blue Dragon eggjanúðlur

 Filippo Berio ólífuolía til steikingar

 200 g Sælkerafiskur tígrisrækjur

 Salt og pipar

 5 hvítlauksrif

 3 gulrætur rifnar niður

 1 kúrbítur rifinn

 2 Blue Dragon hoisin wok sósa

 4 vorlaukar skornir

 kóríander eftir smekk

 salthnetur eftir smekk

Aðferð

Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

Hitið ólífuolíu á pönnu.

Steikið rækjurnar og kryddið með salti og pipar.

Rífið hvítlaukinn yfir rækjurnar.

Setjið gulræturnar og kúrbítinn á pönnuna ásamt sítrónusafanum og sojasósunni.

Bætið því næst vorlauknum út á pönnuna.

Setjið soðnu núðlurnar á bakka og hellið rækjunum yfir.

Sáldrið kóríander og hnetum yfir.

Njótið með Adobe Chardonnay Reserva hvítvíni.

Uppskrift: Vigdís Ylfa