Heit ostaídýfa með jalapeno

Ég gerði þessa ofur gómsætu ostaídýfu sem inniheldur Philadelphia rjómaost með graslauk, sýrðan rjóma, parmigiano reggiano, jalapeno og cheddar ost! Svakalega góð og passar sérlega vel með köldum drykk og tortillaflögum í sólinni eða sem snarl á kósýkvöldi með uppáhalds þættinum ykkar. Ég mæli með að bæta við jalapeno eftir smekk, fer eftir því hversu sterkt þið viljið hafa þetta. Svo er algjör snilld að setja ídýfuna á grillið í ferðalögum, þá er gott að nota steypujárnspönnu eða annað ílát sem má fara á grill.

 

Hráefni

200 g Philadelphia rjómaostur með graslauk
1½ dl sýrður rjómi
3 dl rifinn cheddar ostur
½ dl rifinn parmigiano reggiano
1 dl smátt skorinn jalapeno (eða minna ef þið viljið ekki sterkt)

Toppa með:
35 g smör
½ dl rifinn parmigiano reggiano
⅔ dl panko raspur
Steinselja smátt skorin

Tortillaflögur með ostabragði frá Maarud

Aðferð:

 

Blandið saman rjómaosti, sýrðum rjóma, cheddar osti, parmigiano og jalapeno. Dreifið blöndunni í eldfast mót eða steypu járnspönnu.

Bræðið smjör í potti, bætið parmigiano og raspi saman við og hrærið vel saman.

Dreifið raspinum yfir ídýfuna og bakið í ofni við 190°C á blæstri í 20 mínútur eða þar til ídýfan er orðin gyllt og stökk. Það er einnig mjög gott að grilla ídýfuna.

Dreifið steinseljunni yfir í lokin og berið fram með tortillaflögum.

Vinó mælir með: Corona með þessum rétt.

Post Tags
Share Post