Grilluð satay kjúklingalæri

Fyrir 2-3

Hráefni

Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 600 g

Tælensk karríblanda, 2 msk / Kryddhúsið

Litlar agúrkur, 100 g

Rautt chili, 1 stk

Kóríander, 5 g

Salthnetur, 20 g

Kókosmjólk, 1 dl

Hnetusmjör, 50 g

Sojasósa, 1 tsk

Púðursykur, 1 msk

Rautt karrímauk, 2 tsk  / Thai choice

Límóna, 1 stk

Rauðkál, 150 g

Grillpinnar, 4 stk

Basmati hrísgrjón, 1 dl

Aðferð

Leggið grillpinna í bleyti a.m.k. 30 mín áður en elda á matinn.

Skerið kjúklingalærin í 3-4 bita (fer eftir stærð). Setjið í skál með olíu, salti og tælenskri karríblöndu. Blandið vel saman og látið marinerast í a.m.k. 30 mín.

Setjið 1,5 dl af vatni ásamt svolitlu salti í lítinn pott og náið upp suðu. Bætið hrísgrjónum út í og lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu. Látið malla undir loki í 13 mín, takið svo af hitanum og látið standa undir loki í 10 mín.

Setjið kókosmjólk, hnetusmjör, sojasósu, púðursykur, rautt karrímauk, 0,5 dl af vatni og kreistu af límónusafa í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Hrærið í þar til sósan er byrjuð að þykkjast og allt hefur samlagast. Ef sósan þykkist of mikið má þynna hana með ögn af vatni. Smakkið til með salti.

Þræðið kjúklinginn á spjótin og grillið á 200°C heitu grilli í 10-12 mín en snúið á 2 mín fresti.

Saxið hnetur, sneiðið rauðkál mjög þunnt, sneiðið chili, saxið kóríander og sneiðið agúrkur.

Pennslið kjúklingaspjótin með satay sósu og stráið því næst chili, kóríander og hnetum yfir.

Berið fram með auka satay sósu til hliðar.

 

 

Vinó mælir með: Muga rósavín með þessum rétti.

Uppskrift: Matur og Myndir