Gómsæt og krönsí vefja

Mælum með einni vefju á mann (inniheldur eina stóra tortillu og tvær street taco. Magn fyllingar fyrir hverja tortillu stendur í aðferð)

Hráefni

600 g úrbeinuð kjúklingalæri

3 tsk chipotle mauk eða krydd

1 msk ólífuolía

½ tsk laukduft

½ tsk hvítlauksduft

1 tsk salt

¼ tsk pipar

Tortillur original frá Mission

Street tacos frá Mission

Tortilla chips frá Mission

Philadelphia rjómaostur

Rifinn cheddar ostur

Pinto baunir

Spínat

Tómatar, smátt skornir

Jalapeno úr krukku, smátt skorinn

 

Sósa

1 dós sýrður rjómi

Safi úr ½ lime

½ tsk hvítlauksduft

½ tsk laukduft

1-2 msk ferskt kóríander, smátt skorinn

½ tsk salt

¼ tsk pipar

Guacamole

2 avókadó

2 tómatar

2 msk rauðlaukur

Safi úr ½ lime

Chili flögur

Salt & pipar

Aðferð

Blandið kjúklingalærunum saman við chipotle kryddið, ólífuolíu, laukduft, hvítlauksduft, salt og pipar í skál. 

Setjið kjúklinginn í eldfast mót og bakið í 30-40 mínútur við 190°C á blæstri eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. 

Rífið kjúklinginn smátt með tveimur göfflum. Blandið rifna kjúklingnum vel saman við vökvann og kryddblönduna.

Dreifið ólífuolíu yfir street tacos og bakið við 190°C þar til þær verða stökkar. Fylgist vel með þeim þannig að þær brenna ekki.

Blandið saman í sósuna með skeið og guacamole í töfrasprota eða stappið öllu saman.

Byrjið á því að fylla hverja og eina tortillu. Smyrjið rjómaosti og dreifið 1-2 msk af rifnum cheddar osti í miðjuna. Dreifið 1 dl kjúklingi og smátt skornum jalapeno eftir smekk. Leggið eina stökka street taco tortillu ofan á og smyrjið 1 msk af sósunni yfir. Því næst dreifið þið ½ dl af pinto baunum, 1-2 msk smátt skornum tómati og spínati eftir smekk. Myljið tortilla chips yfir og dreifið 1-2 msk rifnum cheddar osti. Í lokin leggið þið mjúka Street taco tortillu ofan á og lokið stórtu tortillunni með því að brjóta hana saman.

Steikið vefjurnar á vægum hita upp úr ólífuolíu þar til þær verða stökkar. 

Berið fram með guacamole og sósunni eða því sem hugurinn girnist. Njótið.

 

Vinó mælir með Muga með þessum rétti.

Uppskrift: Hildur Rut