Í hverjum mánuði koma ný vín til reynslusölu í Vínbúðunum í Kringlunni, Heiðrúni, Skútuvogi og Hafnarfirði. Fyrir ykkur sem hafið gaman að því að breyta til og prófa ný vín mælum við með að þið prófið þessi neðan greindu vín, en þau voru einmitt að byrja í reynslusölu Vínbúðanna í byrjun mánaðarins.

Adobe Chardonnay kassavín

Bragðlýsing:  Ljóslímónugrænt. Létt meðalfylling, ósætt, mild sýra. Límóna, epli, steinefni.

Styrkleiki: 12,5%

Land: Chile

Framleiðandi: Vinedos Emiliana S.A.

Þrúga: Chardonnay

Sérmerking: Lífrænt, Vegan

Verð: 6.499 kr.

Passar með: Meðalfyllt vín, gott með fiskréttum, skelfiski, ljósu kjöti, pasta og sushi.

 

Dievole Le Due Arbie Bianco 

Bragðlýsing:  Ljóssítrónugult. Létt fylling, ósætt, fersk sýra. Sítrus, stikilsber, hýði.

Styrkleiki: 12,5%

Land: Ítalía

Hérað: Toskana

Framleiðandi: Dievole

Verð: 2.499 kr.

Passar með: Skelfisk, fisk og grænmetisréttum.

 

Dievole Le Due Arbie Rosso

Bragðlýsing:  Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, sýruríkt, miðlungstannín. Kirsuber, brómber, rósmarín, lyng, tunna.

Styrkleiki: 13%

Land: Ítalía

Hérað: Toskana

Framleiðandi: Dievole

Verð: 2.499 kr.

Passar með: Kjúkling, lamba- og svínakjöti og ostum.

 

Dievole Le Due Chianti Superiore

Bragðlýsing:  Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, kirsuber, laufkrydd, grænar ólífur.

Styrkleiki: 13,5%

Land: Ítalía

Hérað: Toskana

Upprunastaður: Chianti

Framleiðandi: Dievole

Verð: 2.699 kr.

Passar með: Lamba- og svínakjöti, grænmetisréttum og smáréttum.

Emiliana Brut Organic

Bragðlýsing:  Ljóssítrónugult. Ósætt, létt freyðing, fersk sýra. Epli, ananas, ristað brauð.

Styrkleiki: 12,5%

Land: Chile

Framleiðandi: Vinedos Emiliana S.A.

Þrúga: Chardonnay 76%, Pinot Noir 24%

Verð: 2.399 kr.

Passar með: Hentar vel með mat eins og t.d. smáréttum, sushi, fiski, grænmetisréttum og ljósu fuglakjöti. 

Gratavinum Silvestris 

Bragðlýsing:  Dökkfjólurautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, krækiber, barkarkrydd, lyng.

Styrkleiki: 14,5%

Land: Spánn

Hérað: Katalónía

Upprunastaður: Priorat

Framleiðandi: Gratavinum S.L

Sérmerking: Lífrænt, Bíódínamík

Verð: 4.499 kr.

Passar með: Hér er um að ræða kröftugt vín, með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Þetta vín hentar vel með nautakjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.

Post Tags
Share Post