Vidal Fleury – Elsta vínhús Rhone

Nálægt borginni Lyon í miðhluta Frakklands er að finna eitt af frægustu vínsvæðum Frakklands og veraldar allrar, Rhone.  Hérna liðast Rhone áin í gegnum ótrúlegt landslagið sem einkennist af mjög bröttum hlíðum víngarða margra af þekktustu vínhúsum Frakklands.

Hér í upprunasvæði Syrah þrúgunnar hafa vín verið ræktuð að minnsta kosti frá tímum rómverska heimsveldisins, þó margir telji víngerð á svæðinu ná enn aftar í söguna.  Aðrar þrúgur eru einnig mikilvægar í svæðinu og þá sérstaklega Grenache og Mourvédre, Syrah er hinsvegar það sem skiptir mestu máli.WP_20130612_10_52_03_Panorama

 

Þekktustu vín svæðisins eru án efa hin mögnuðu Cote-Rotie vín sem ræktuð eru í kringum smábæinn Ampuis.  Svæðið í kringum hentar einstaklega vel til víngerðar því þarna tekur Rhone áin á sig sveigju og rennur í til suðvesturs.  Snar brattar suðurhlíðar svæðisins njóta því mikillar sólar stóran hluta dagsins á sumrin sem gerir vín þaðan kraftmeiri en á flestum öðrum stöðum.

Cote-Rotie skiptist í tvö undirsvæði annarsvegar Cote-Brune og Cote-Blonde og ræðst nafnið af jarðvegs samsetningu vínekrana.  Í Cote-Brune er járnríkur sandsteinn ríkjandi og í Cote-Blonde er kalksteinn og granít ríkjandi.  Cote-Brune vínin eru fyrir vikið kraftmeiri og tannín ríkari en Cote-Blonde eru arómatískari.

WP_20130612_11_27_01_Panorama

 

Í Ampuis er að finna elsta vínhúsið í Rhone, Vidal Fleury, en Josehp Vidal stofnaði vínhúsið árið 1791 og sjá má fjölmargar byggingar í bænum sem merktar eru vínhúsinu.  Árið 1984 keypti Etienne Guigal einn frægast víngerðarmaður Frakka vínhúsið.  Guigal hafði starfað í 22 ár hjá Vidal Fleury og ákvað að reka það áfram undir nafninu Vidal Fleury jafnvel þótt hann hafði áður stofnað fyrirtæki undir eigin nafni.

Fyrir nokkrum árum hófst mikil nútímavæðing hjá Vidal Fleury.  Fyrirtækið flutti í nýtt húsnæði í útjaðri Ampuis og er nýjasta tækni notuð í hvívetna til að tryggja hámarksgæði vínanna.  Vín fyrirtækisins taka mið af þessu, en þau eru í senn nútímaleg og hefðbundin.

WP_20130612_005WP_20130612_014

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Vidal Fleury Cotes du Rhone 2012

4star
Cote Du Rhone 2012

Passar vel með: Lambakjöt, svínakjöt, grillmatur og pottréttir.

Lýsing: Rúbínrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð og bláber, lyng, barkarkrydd, sveit.

 

Vinótek segir:

Vidal-Fleury er eitt af klassísku vínhúsunum í Ampuis, nyrst í Rhone-dalnum og er þekktast fyrir Cote Rotie og önnur norðurhlutavín. Einfaldari vín hússins eru yfirleitt með þeim betri í sínum flokki. Vínið er fallega dökkfjólublátt, angan af rauðum og svörtum berjum, kirsuberjum, nokkuð kryddað, örlítill reykur og örlítill pipar, í munni rennur lakkrís saman við ávöxtinn, vel uppbyggt, þétt tannín og góður strúktúr. Virkilega gott matarvín, t.d. með lambi eða nauti. Frábær Kaup.

 

.

Share Post