Bláber, rósmarín & gin

Hráefni

Gin, 6 cl

Bláberjasíróp*, 3 cl

Nýkreistur sítrónusafi, 3 cl

Rósmaríngrein, 2 stk

Sítrónusneið, til skrauts

Bætið gini, hunangs-bláberjasírópi, sítrónusafa og lítilli rósmaríngrein út í kokteilhristara ásamt helling af klökum. Hristið vel í stutta stund og síið svo í kælt glas fyllt af muldum klökum.

Skreytið með rósmaríngrein og sítrónusneið.

 

Hunangs-bláberjasíróp

Hráefni

Bláber, 80 g

Hunang, 30 ml

Vatn 30 ml

Sítrónubörkur, 2 cm ræma

 

Aðferð

Setjið öll hráefni í lítinn pott og kremjið berin. Stillið á miðlungshita og látið malla í nokkrar mín þar til sírópið hefur tekið fallegan lit og er aðeins byrjað að þykkjast.

Síið í glas og kælið. Úr þessari uppskrift ættu að verða um 6 cl af sírópi en það má auðveldlega skala uppskriftina upp ef þarf.

Uppskrift: Matur og Myndir

Share Post