Camino Romano 2016

Vínótek segir;

Dominio Romano er lítið vínhús í Ribera del Duero sem Cusine-fjölskyldan hefur verið að byggja upp á undanförnum árum. Sú ágæta fjölskylda er þekktust fyrir hið frábæra fjölskylduvínhús Pares Balta í Penedes suður af Barcelona sem er með allra bestu vínhúsum þess hluta Spánar. Þau hafa hins vegar einnig verið að færa út kvíarnar, annars vegar til Priorat og síðan til Ribera eins og áður var getið. Líkt og heima fyrir er áherslan á sem náttúrulegasta ræktun vínanna og Dominio Romano vínin eru lífrænt ræktuð.

Camino Romano er yngra vín hússins, Tinto Fino. Þetta er ungt, dökkt og aflmikið vín. Dökkur, þroskaður, allt að því þurrkaður ávöxtur, kirsuber og krækiber, nokkuð kryddað, kröftugt og tannískt, þurrt og langt í lokin, ferskt með mildri eik sem situr eftir.

2.999 krónur. Frábær kaup. Með grilluðu rauðu kjöti, nauti og lambi. Reynið með lambakótilettum.

Share Post