Sumarlegur whisky Sour

Karen Guðmunds ritar:

 

Uppskrift fyrir einn drykk

Hráefni

6cl Jim Beam Bourbon viskí 

2 cl ferskur sítrónusafi

2 cl sykursíróp

4 sneiðar af ferskju

2-4 Basil

1 eggjahvíta

Aðferð

Það er alltaf auðveldara að búa til kokteil drykki sem innihalda eggjahvítur með því að nota báðar hliðar á hristaranum til að útbúa drykkinn, með því að gera það getur þú aðskilið öll hráefnin frá eggjahvítunni þar til það er komin tími til að hrista kokteilinn. Í stærri hliðinni, brjóttu eggið og aðskildu eggjahvítuna frá eggjarauðunni. Í smærri hliðina skaltu bæta ferskjum, basiliku, ferskum sítrónusafa, sykursírópi og hrærðu aðeins í þessu, bættu síðan við bourbon. Hellið þessu síðan yfir í stærri hliðina af hristaranum og hristið aðeins, það er mikilvægt að sameina eggjahvítuna aðeins við hin hráefnin áður en þú kælir drykkinn með klökum. Bættu síðan klökum við ofan í hristarann og hristu aftur, mjög vel. Það er mikilvægt að hrista kokteil drykki vel saman þá sérstaklega þegar drykkirnir innihalda egg, líka til að fá eggið til að freyða fullkomlega. Helltu síðan úr hristaranum í glös og skreyttu með ferskju og basiliku.

Share Post