Byrjað er á að gera sykursíróp (má gera daginn áður t.d., geymist vel í kæli í lokuðum umbúðum). Setjið sykur og vatn í pott, hitið þar til öll sykurkornin eru bráðnuð saman við, hellið sykursírópinu á flösku eða annað ílát og kælið.
Setjið gin og basil lauf í kokteilhristara, merjið laufin saman við ginið. Kreistið ½ lime út í, setjið sykur síróp og klaka í kokteilhristarann og hristið vel og kröftuglega saman.
Hellið í gegnum sigti í kokteil glas og skreytið með basil laufum.