Grillaður þorskur í heimagerðum kryddlegi

Hráefni

700 g þorskur

¼ tsk hvítlaukskrydd

¼ tsk engifer krydd

¼ tsk salt

¼ tsk pipar

¼ tsk paprika

¼ tsk kóríander fræ

örlítið túrmerik

2-3 msk ólífu olía

1 sítróna

Aðferð

Byrjið á því að setja saman öll kryddin í skál, setjið ólífu olíu út á kryddið, rífið börkinn af sítrónunni og hrærið saman.

Penslið kryddleginum á þorskinn, á báðar hliðar, það er gott að leyfa kryddinu að marinerast á fiskinum í nokkra klukkutíma ef tími leyfir.

Kveikið á grillinu, notið grillgrind undir fiskinn, smyrjið hana vel fyrst með ólífu olíu. Grillið fiskinn í 4-5 mín á hvorri hlið eða þar til hann er eldaður í gegn.

Kreystið safann úr sítrónunni yfir fiskinn áður en hann er borin fram.

Gott að bera fiskinn fram með fersku salati og til dæmis þessari sósu.

Vínó mælir með: Adobe Reserva Sauvignon Blanc með þessum rétt.

Uppskrift: Linda Ben