Klassískt og gott Chianti-vín

Helgarvínið, Melini Chianti Governo, kemur frá einum af virtari vínframleiðendum í Chianti í Toskana, Melini. Vínið hefur fallegan rúbínrauðan lit, með góða meðalfyllingu, sætuvottur og ferska sýra. Lítil tannín. Jarðarber, lyng og kirstuber. Við mælum með að þið prófið vínið með klassískum pastarétti, t.d. spaghetti bolognese eða ljúffengu carbonara.

Víngarðurinn Vín og Fleira  segir;

Það er alltaf gaman að fá gott Chianti-vín og sérstaklega þegar þau eru vel prísuð en þetta hér fær eiginlega hálfa stjörnu í viðbót fyrir frábært verð á svona góðu víni. Það hefur meðaldjúpan rúbínrauðan lit og meðalopna og dæmigerða angan af kirsuberjum, leðri, beiskum möndlum, lakkrís, sultuðum krækiberjum, þurrkuðum appelsínuberki, og jörð. Það er meðalbragðmikið og þurrt með góða sýru og ágæta fyllingu en tannínin eru ögn hrjúf sem dregur það pínulítið niður. Þarna eru kirsuber, krækiberjahlaup, lakkrís, kakó, þurrkaðar fíkjur og jörð. Dæmigert og fínt vín þótt það sé kannski ekki það flóknasta og þykkasta sem hægt er að finna, en þessvegna er kannski auðveldara að finna mat sem stendur með því. Allskonar ítalskur matur klikkar ekki td dökkt pasta, hægeldað svínakjöt og lamb. Verð kr. 2.299.- Frábær kaup.

Share Post