Grilltímabilið er í hámarki og þjóðarrétturinn, grillmatur af ýmsu tagi, kitlar bragðlauka landsmanna, funheitur og bragðmikill, nýkominn af opnum eldi. Það má vitaskuld grilla allt sem að grilli kemur yfirleitt og eftir því er mismunandi hvað hentar með matnum. En sé meiningin á annað borð að grilla kjöt þá er gott rauðvín ómissandi. Sé rauðvínið vel parað með kjötinu þá fæst ekki aðeins matur og drykkur sem passar vel saman, heldur dregur það besta fram í hvort öðru. Við tókum saman nokkur frábær rauðvín í öllum verðflokkum sem steinliggja með grillkjötinu í sumar!
Ramon Roqueta Tempranillo
Bragðlýsing: Fjólurautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þurrkandi tannín. Dökk ber, banani.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Hérað: Catalunya
Framleiðandi: Bodegas 1898 S.L
Þrúga: Tempranillo
Verð: 1.899 kr.
Passar með: Þetta vín passar með flestum mat. Nokkuð bragðmikið. Prófið með grilluðu svínakjöti og lambakjöti.
Adobe Reserva Syrah
Bragðlýsing: Rúbínrautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Sólber, brómber, laufkrydd, eik, lakkrís.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Chile
Hérað: Valle de Central
Framleiðandi: Vinedos Emiliana
Þrúga: Syrah
Verð: 2.099 kr.
Passar með: Mjög gott vín, nokkuð bragðmikið, Prófið t.d. með kolagrilluðu lambi.
Ramon Roqueta Reserva
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk kirsuber, brómber, barkarkrydd, jörð.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Hérað: Catalunya
Framleiðandi: Bodegas 1898 S.L
Þrúga: Cabernet Sauvignon, Tempranillo
Verð: 1.999 kr.
Passar með: Frábært vín með rauðu grillkjöti og ostum. Prófið með grilluðu lambakjöti.
Cune Crianza
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, lyng, eik.
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Hérað: Rioja
Framleiðandi: CVNE
Þrúga: Tempranillo
Verð: 2.299 kr.
Passar með: Frábært vín með rauðu grillkjöti og ostum. Prófið með grilluðu lambakjöti.
Flor de Crasto
Bragðlýsing: Dökkrúbínrautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Brómber, bláber, lyng.
Styrkleiki: 14,5% vol
Land: Portugal
Hérað: Douro
Framleiðandi: Quinta do Crasto S.A
Þrúga: Tinta Roriz, Touriga Franca, Touriga Nacional
Verð: 2.399 kr.
Passar með: Kröftugt vín með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Prófið með grilluðu svínakjöti.
Amalaya Tinto de Corte
Bragðlýsing: Dökkrúbínrautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Kirsuber, trönuber, laufkrydd, lakkrís.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Argentína
Hérað: Costal Region
Framleiðandi: Bodegas Amalaya
Þrúga: Malbec, Syrah, Tannat
Verð: 2.499 kr.
Passar með: Kröftugt vín með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Prófið með grilluðum lambakótilettum.
Cune Reserva
Bragðlýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, kirsuber, laufkrydd, tunna
Styrkleiki: 13,5% vol
Land: Spánn
Hérað: Rioja
Framleiðandi: CVNE
Þrúga: Tempranillo
Verð: 2.799 kr.
Passar með: Bragðmikið og gott rauðvín sem passar með flestum mat. Prófið með grilluðu nautakjöti.
Glen Carlou Cabernet Sauvignon
Bragðlýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Sultuð rauð ber, sveit, jörð, laufkrydd, eik.
Styrkleiki: 14% vol
Land: Suður Afríka
Hérað: Costal Region
Framleiðandi: Glen Carlou Vineyards
Þrúga: Cabernet Sauvignon
Verð: 2.999 kr.
Passar með: Kröftugt vín með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Hentar mjög vel með grilluðu nautakjöti.
Hess Select Cabernet Sauvignon
Bragðlýsing: Dökkirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, mild sýra, þétt tannín. Dökk kirsuber, súkkulaði, mandarína.
Styrkleiki: 13,8% vol
Land: Bandaríkin
Hérað: North Coast
Framleiðandi: Hess Family Wine Estate
Þrúga: Cabernet Sauvignon
Verð: 2.999 kr.
Passar með: Þétt berjabragð og nokkuð tannískt. Hentar mjög vel með grilluðu nauti eða lambi.
The Hess Collection Allomi Cabernet Sauvignon
Bragðlýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra, þroskuð tannín. Sultuð kirsuber, sólber, súkkulaði, kókos, vanilla.
Styrkleiki: 14,5% vol
Land: Bandaríkin
Hérað: North Coast
Framleiðandi: Hess Family Wine Estate
Þrúga: Cabernet Sauvignon
Verð: 3.999 kr.
Passar með: Kröftugt vín með þéttu berjabragði og nokkuð tannískt. Hentar mjög vel með grilluðu nautakjöti.