Saga víngerðar á sér djúpar rætur og merkar í Douro dalnum.  Dalurinn er með eindæmum fjórsamur og fyrir bragðið má þar finna marga aldagamla vínframleiðendur með mikla hefð á bakvið sig. Þeirra á meðal er vínhúsið Qunita Do Crasto sem framleiðir ekki bara himneskar afurðir úr landsins gæðum heldur leggur líka mikla áherslu á að taka vel á móti gestum. Helgarvínið Flor De Crasto kemur einmitt frá þessu frábæra vínhúsi, fallega rúbínrautt með góða fyllingu, ferska sýru og mjúk tannín. Frábært vín með saltfisk, kjúkling, svínakjöti og pottréttum. Bragðmikið vín sem passar líka vel með dökku kjöti.

 

Vinotek segir;

Oft er maður beðinn um að nefna eitthvað vínhérað sem spennandi væri að fylgjast með í framtíðinni. Og oftar en ekki er Douro í Portúgal það svæði sem fyrst kemur upp í hugann. Lengst af var vínræktin nær einvörðungu til framleiðslu á portvínum en í seinni tíð hafa ekki síst rauðvínin, gerð úr sömu mögnuðu þrúgum og notaðar eru í Port, ekki síst Touriga Nacional.  Douro gefur yfirleitt langtum meira vín en verðið segir til um og Flor de Crasto er frábært dæmi um það. Þetta er grunnvínið frá einu besta vínhúsinu í Douro, Quinta do Crasto og ber þess merki. Dökkt og djúpt á lit, mjög svartur, heitur ávöxtur, plómur, allt að því út í sveskjur, tóbakslauf, kryddað og heitt, mjúkt en jafnt með smá tannínbiti og sýru sem lyftir því upp og gefur ferskleika. 1.999 krónur. Algjörlega frábær kaup á þessu verði. Vín sem þarf bragðmiklan mat og ræður þess vegna við rautt kjöt.

1.999 kónur. Frábær kaup

Share Post