Cune reserva helgarvíniðSpænska vínhúsið Cune hefur löngum verið eitt það fyrirferðamesta og mikilvægasta í Rioja og framleiðir mörg af betri vínum héraðsins. Helgarvínið Cune Reserva er eitt þeirra vína. Fallega kirsuberjarautt á lit. Vín með meðalfyllingu, ferska sýru og miðlungstannín. Skógaber, barkakrydd, lyng og eik. Frábært vín með lambakjöti, kjúkling, pottréttum og léttri villibráð.

 

Vinotek segir;

„Cune er eitt af þremur vínhúsum innan CVNE (Compania Vinicola del Norte de Espana). Hin tvö heita Vina Real og Contino og öll þrjú hafa sína sérstöðu í Rioja og eru í hópi þeirra bestu í sínum flokki. Klassískt Rioja. Dökk ber, skógarber, sólber, krækiber, nokkuð eikað, þarna er ristað kaffi, reykur og vanilla, smá leður. vel balanserað, þykkt, þétt og flott. Frábært kjötvín. 2.999 krónur. Frábær kaup.“

2.999 kónur. Frábær kaup

Share Post