Ribeye steikur með tómatsmjöri og parmesan kartöflum

Fyrir 2

Hráefni

Ribeye steikur, 2x 250 g

Ósaltað smjör, 50 g / Við stofuhita

Tómatpúrra, 15 g

Hvítlaukur, 2,5 g (1 lítið rif)

Kartöflur, 400 g

Parmesan ostur, 25 g

Steinselja, 4 g

Romaine salat, 70 g

Kirsuberjatómatar, 5 stk

Rauðlaukur, ¼ lítið stk

Balsamic edik, 1 msk

Ólífuolía, 2 msk

Hunang, ½ tsk

Aðferð

  • Stappið saman tómatpúrru, 50 g smjör og hvítlauk. Smakkið til með salti og rúllið tómatsmjörinu svo þétt inn í plastfilmu. Geymið í kæli.
  • Takið kjötið úr kæli 1 klst áður en á að elda það.
  • Stillið ofn á 180 °C með blæstri.
  • Skerið kartöflurnar í bita og veltið upp úr olíu, salti og pipar. Dreifið kartöflunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í 30-35 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar. Færið kartöflurnar í skál, saxið steinselju og rífið um 10 g af parmesanosti og hrærið saman við kartöflurnar.
  • Skerið eða rífið romaine salat eftir smekk. Skerið rauðlauk í þunnar sneiðar, skerið tómata í bita og notið skrælara eða ostaskera til þess að gera þunnar parmesan sneiðar úr restinni af parmesanostinum.
  • Pískið saman balsamic edik, ólífuolíu, hunang og smá salt.
  • Setjið grænmetið í skál og veltið upp úr salatdressingunni rétt áður en maturinn er borinn fram.
  • Nuddið nautakjötið með olíu og saltið og piprið rausnarlega. Hitið pönnu þar til hún er orðin mjög heit. Bætið smá olíu út á pönnuna og því næst kjötinu. Látið steikurnar liggja óhreyfðar í 2 mín á annari hliðinni, snúið þeim og látið liggja óhreyfðar í aðrar 2 mín. Bætið smjörklípu út á pönnuna og steikið steikurnar áfram í um 2 mín (6 mín samtals) fyrir medium rare steikingu en snúið þeim á um 30 sek fresti.
  • Skerið tómatsmjörið í skífur og berið fram með steikunum.

Vínó mælir með: Ramon Roqueta Reserva með þessum rétt.

Uppskrift og myndir: Matur & Myndir

Post Tags
Share Post