Litríkt Fiski Taco

Uppskriftin er fyrir fjóra og tekur um 40 mínútur að elda.

Regnboga hrásalat, uppskrift:

1/2 haus rauðkál, smátt skorinn

1/2 haus kínakál, smátt skorinn

3 gulrætur, skrældar og rifnar

1 dl smátt saxað kóríander

safi úr 1/2 sítrónu

2 msk sýrður rjómi

2 msk majónes

Aðferð:

Skerið allt grænmetið smátt niður og blandið saman í skál

Kreistið 1/2 sítrónu yfir.

Setjið sýrðan rjóma og majónes út á salatið og blandið vel saman.

Djúpsteiktur fiskur, uppskrift:

800 g þorskur skorin í bita

400 ml djúpsteikingarolía

1 bolli hveiti

3 msk kornsterkja

1 msk matarsódi

2 tsk salt

2 tsk cumin krydd

2 tsk papriku krydd

2 tsk hvítlauks krydd

1 tsk cayenne krydd

1 tsk svartur pipar

1 bolli vatn

Aðferð:

Skerið þorskinn í bita, þurrkið hann svo með eldhúspappír.

Blandið saman í skál öllum þurrvörunum og kryddum. Setjið vatnið út í og hrærið þangað til blandan verður kekklaus.

Hitið olíuna þangað til hún nær 175°C (best að mæla með matvæla hitamæli en annars er hægt að mæla hitastigið með því að setja lítinn bút af fiski ofan í olíuna og ef það sýður með fram fiskinum og hann flýtur strax á yfirborðið þá er olían nógu heit)

Hafið bakka með eldhúspappír tilbúinn nálægt til að setja fiskinn á þegar hann er tilbúinn.

Setjið nokkra fiskibita ofan í deigið. Steikið eins marga búta í einu og þið komist upp með, ég var með 3-4 búta í pottinum í einu, gott að byrja með fáa í einu en auka svo þegar færnin er komin. Fiskurinn þarf að steikjast í um það bil 3-4 mín, fer eftir stærð. Setjið fiskinn á bakkann með eldhúspappírnum.

Raðið svo hrásalatinu og fiskinum ofan á mjúkar vefjur, það er svo mjög gott að setja smá maukað avocadó, sýrðan rjóma, mylja smá pipar og kreista lime yfir.

Vinó mælir með Muga Rioja Rosado, fágað og glæsilegt rósavín frá Rioja á Spáni. Föl laxableikt á lit, ósætt, fersk sýra. Ferskja, hindber, suðrænn ávöxtur. Sjá víndóm um vínið hér.

Uppskrift: www.lindaben.is

 

b_muga_rosado