IMG_1518

Lax með kúskús & balsamic gljáa

Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir

Hráefni:

2 laxaflök með roði
Balsamic sýróp
Salt og pipar

Sítróna

1 bolli kúskús
2 bolli vatn
6-7 sólþurrkaðir tómatar smátt skornir
1 rauðlaukur smátt skorinn
1 fetakubbur eða 1 dós af fetaosti
1 lúka söxuð steinselja

Aðferð:

  1. Þerrið laxinn með eldhúspappír, saltið og piprið flökin og bætið smá chilli kryddi við eftir smekk.
  2. Kveikið undir hellu á meðalhita, skellið smá olíu á pönnuna og setjið laxinn á roðinu á pönnuna, lækkið aðeins í hitanum.
  3. Eldið laxinn án þess að snerta hann þar til hann er farinn að vera ljósbleikur um 3/4 af leiðinni upp frá roðinu eða um það bil 6 til 7 mínútur.
  4. Snúið flakinu við og eldið í nokkrar mínútur í viðbót. Best er að nota góðan spaða og gaffal til að styðja við flakið á meðan þið snúið laxinum við svo hann brotni ekki í sundur.
  5. Þegar laxinn er tilbúinn og ekki of þurr þá á hann að vera í 62 gráðum.
  6. Slökkvið undir hellunni og kreistið smá sítrónu yfir.


KúsKús

  1. Eldið kúskús eftir leiðbeiningum á pakkanum.  Þegar kúskúsið er tilbúið þá færið þið það í stóra skál og hellið olíu yfir og hrærið til með smá salti og pipar.
  2. Rífið fetaost ofan í skálina ásamt rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum og lúku af saxaðri steinselju.
  3. Kreistið smá sítrónu yfir og hrærið öllu saman.
  4. Setjið kúskús á disk, laxinn ofan á og kreistið svo balsamic gljáa yfir laxinn og stráið smá steinselju.

IMG_1542

Vinó mælir með Adobe Reserva Sauvignon Blanc með þessum rétt.

Share Post