Hráefni

Nautalund, 2x 200 g (t.d. í Black Garlic marineringu)

Grasker (Butternut squash), 500 g án hýðis

Hvítlaukur, 4 rif

Rjómi, 60 ml

Smjör, 60 g

Grænkál, 60 g (stilkurinn ekki talinn með)

Parmesan, 15 g

Sítróna, 1 stk

Ristaðar möndluflögur, 20 g

Kastaníusveppir, 150 g

Herbs Provance kryddblanda, 0,5 tsk

Soyasósa, 1 tsk

Balsamedik, 1 tsk

Steinselja, 2 g

Aðferð

  1. Takið kjötið úr kæli 1 klst áður en elda á matinn ásamt 30 g af smjöri.
  2. Setjið smjörið í skál þegar það er orðið mjúkt ásamt smá salti, 0,5 pressuðu hvítlauksrifi og saxið steinseljuna saman við. Stappið vel saman og smakkið til með salti og örlítið meiri hvítlauk ef þarf.
  3. Skerið sveppina í tvennt eða fernt eftir stærð. Veltið upp úr soyasósu, balsamediki, Herbs Provence, smá olíu og 1 pressuðu hvítlauksrifi. Setjið sveppina í lítið eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 30-40 mín. Hrærið reglulega í sveppunum þar til vökvinn sem þeir leysa frá sér er gufaður upp og sveppirnir eru fulleldaðir.
  4. Vefjið 3 hvítlauksrifjum þétt inn í álpappír með smá olíu og salti.
  5. Skerið grasker í bita og veltið upp úr smá olíu og salti. Dreifið graskerinu yfir ofnplötu með bökunarpappír og komið innpakkaða hvítlauknum líka fyrir á plötunni. Bakið í neðstu grind í ofni í um 30 mín eða þar til graskerið er farið að taka lit og er mjúkt í gegn. Hrærið í þegar tíminn er hálfnaður.
  6. Færið bakaða graskerið og hvítlaukinn í pott ásamt 30 g af smjöri og rjómanum. Maukið með töfrasprota þar til graskerið er orðið silkimjúkt. Smakkið til með salti og geymið undir loki þar til maturinn er borinn fram.
  7. Saxið grænkál nokkuð smátt og setjið í skál með ristuðum möndluflögum. Rífið sítrónubörk saman við með fínu rifjárni (varist að taka hvíta undirlagið með því það er beiskt á bragðið) ásamt parmesanosti. Hrærið 0,5 msk af ólífuolíu saman við ásamt kreistu af sítrónusafa og blandið öllu vel saman. Smakkið til með salti ef þarf.
  8. Hitið stálpönnu við háan hita. Bætið olíu út á pönnuna og steikið kjötið í 3,5-4,5 mín á hvorri hlið (fer eftir þykkt). Bætið smjörklípu út á pönnuna þegar þegar um 1 mín er eftir af steikingartímanum og dreypið bráðnu smjörinu yfir kjötið með skeið. Látið kjötið hvíla í 5 mín áður en skorið er í það.

 

Vínó mælir með: Cune Reserva með þessum rétti.

Uppskrift: Matur & Myndir

Share Post